Sarpur | febrúar, 2012

Nokkur atriði sem ég hef tekið eftir í Dunedin…

25 feb

Jæja þá… er búin að vera að fresta því of lengi að blogga. Búið að vera rosalega gaman. Langar bara að lýsa fyrir ykkur í eins stuttu máli og ég get hvernig staður Dunedin er…

… í fyrsta lagi þá finnst fólki mjög óþarft að vera að fara í skó þegar það er að skreppa út í sjoppu, búð, pósthúsið, vínbúðina o.þ.h. Skiptir ekki máli þó það sé rigning. Fólk er samt berfætt, stelpur og strákar! Veit ekki hvort það sé NZ thing eða bara hérna í Dunedin.

… það er soldið fyndið að koma hingað beint frá NY, Cleveland, Boston og San Francisco stórborgum í Bandaríkjunum, það er soldið eins og að fara frá Íslandi til Færeyja þó ég hafi ekki komið til Færeyja, þá er það hvað allt er krúttilegt hérna og helst hreimurinn og orðin sem þau nota.

Nokkur orð til gamans:

Kúrs – paper

Flip flops – Jandals

Innkaupakerra – Trolley

Pressukanna – Plunger (drullusokkur?)

Hádegi  – Midday

Ha? – Hey!?

Á ég að henda þessu? – Would you like me to bin this?

… hérna þegar maður er á gangstéttinni er ég alltaf að reyna að víkja til hægri eins og maður gerir heima en ég er alltaf næstum því búin að klessa á greyið fólkið því hérna víkja allir til vinstri. Þetta er eitthvað innbyggt í mann út af bílaumferðinni en hérna keyra þau vinstra megin. Rúllustigarnir eru líka “öfugir”.. maður þarf að fara vinstra megin upp/niður stiga. Þetta tekur nokkra daga að venjast.

… ég ætlaði að gera mojito en það var ekki hægt að kaupa lime því það var ekki sú árstíð. Núna er það reyndar komið í búðir en kílóverðið var 3000 kr!

… hérna eru allir komnir til að hafa gaman og fólk kann svo sannarlega að skemmta sér, það er greinilegt að það á ekkert að vera að taka lífinu of alvarlega. Ég þurfti að hitta konu frá deildinni minni til að samþykkja stundatöfluna mína og hún sagði mér að vera ekkert að taka meira en ég ætti að taka, og helst taka einfaldari kúrsa svo ég gæti bara notið þess að vera hérna og skoðað það sem NZ hefur upp á að bjóða, þannig að ég verð mögulega bara í skólanum 3 daga í viku! þri, mið og fim!

…Já, Nýsjálendingar kunna að skemmta sér, það er mjög smitandi, því hérna er fólk alls staðar að úr heiminum og það er þvílíkt góður mórall og allir sem ég hef kynnst eru mega nice!

… já og þegar það er vetur heima þá er sumar hér, og þegar það er nótt heima er kominn dagur hér.

Nokkrar símamyndir.. (sorry er alveg slacking hérna í að vera með myndavélina á mér)..

Flatmates: Jenna from the US, me and Rachel our Kiwi host

 

With my flatmates

notið sólarinnar

my school

eðlilegt!

 

úr lestarferð á vegum skólans

 

lestarstöðin

 

Bon voyage!

19 feb

Það er vægast sagt margt sem hefur drifið á daga mína undanfarið. Ég hef eiginlega ekkert gefið mér tíma til að blogga þess vegna. 

Það er búið að vera algjörlega frábært að fá þetta tækifæri til að ferðast svona yfir heiminn. Það var ótrúlega gaman í Bandaríkjunum. Fyrst fór ég til New York að heimsækja Önnu Rósu, Shanga og Emblu. Það var rosa gott að koma aftur til New York. Maður er svo iðandi af lífi þar. Ég þurfti alveg klárlega að komast burtu frá Íslandi. Ég finn það alveg. Það var líka rosa gott að vera hjá þeim, og frábært að þau séu loksins komin á austurströndina eftir að vera búin að búa í Seattle í svona mörg ár. 

Ég og Embla litla frænkan mín náðum samt bara einum degi saman þar sem hún var í Seattle í heimsókn akkurat þegar ég var þarna en við gerðum sem mest úr þessum degi og áttum saman frábærar frænkustundir. Fórum á kaffihús, röltum um borgina, fórum í fótsnyrtingu með Önnu Rósu og svo um kvöldið fórum við bara tvær saman út að borða á stað sem heitir Vapiano sem er ítalskur soldið sniðugur staður. Maturinn er mjög ferskur og eldaður fyrir framan mann, samt er svona afslappaður kaffiteríu-fílingur. Maður sest á borð með ókunnugum og bíður í röð eftir að panta matinn og svona. Við settumst með hóp af fólki sem voru sennilega frá mið-austurlöndum en voðalega drukkin öll sömul. Það var mjög gaman að fylgjast með þessu fólki og skemmtum við Embla okkur konunglega við að giska hvernig þau þekktust og hvað þau væru eiginlega að gera saman þarna, við komumst á endanum að því að það var einn gamall karl og ung kærastan hans, svo var einn ungur hommi sem var frændi kærustunnar og systir hans var þarna líka og kærastinn hennar. Vildi að ég ætti mynd af þessum hóp en svo er ekki. Image

Svo skrapp ég yfir til Connecticut að hitta Nönnu frænku og fjölskyldu. Hér erum ég og Indía í kennaraleik: 

Image

Hérna er ein mynd af Unu að vera krútt:

Image

Dante í góðum gír að spila tölvuleik:

Image

 

Svo verð ég að skella inn einni mynd sem ég tók á hlaupum í New York en hún er í einhverju uppáhaldi hjá mér:

Image

Svo örfáar í viðbót frá NY…

Image

Image

Image

Image

Image

 

Svo tók ég lest til Connecticut að heimsækja Mary frænku mína. Við fórum í æðislega göngu í nokkra klukkutíma inn í skógi og upp á hæð með alveg magnað útsýni. Ég var reyndar ekki með myndavélina mína :( Þannig að ég á bara simamyndir. 

Image

Image

 

Svo fór ég í rútu til Gretu í Boston, en ég er búin að blogga hérna áður um hvað var gaman í Boston :) Fórum í sædýrasafn og horfðum á superbowl og ég og Greta skelltum okkur grand út að borða. Það var æðislegt! 

Þessi færsla er nú orðin aðeins lengri en ég ætlaði mér þannig að ég segi smá frá Ohio og San Francisco næst… svo að sjálfsögðu Nýja Sjálandi.. 

Þangað til næst… Adios!

xx

 

New England Aquarium…

8 feb

Það var voða gaman að fara og skoða eitthvað og sjá Boston aðeins meira en bara BÚÐIRNAR! Flestir sem koma og heimsækja Gretu eru að versla en þar sem ég var bara með eina fulla ferðatösku á leiðinni í mörg flug kom ekki til greina að versla svo að við gerðum bara aðra hluti saman og ég sá miklu meira af Boston eins og niður við ána og tók nokkrar myndir þar og þetta sædýrasafn sem var snilld en ég var því miður ekki með myndavélina á mér þar svo að ég tók nokkrar myndir á símann, þær eru ekkert æðislegar en hér koma samt nokkar…

Image

Þessi skjaldbaka var svo stór að ég vissi ekki að þær gætu orðið svona HUGE!

Image

Sæhestur! Klárlega uppáhaldið mitt því þeir eru svo flottir!

Image

I found Nemo!

Greta, ég og mörgæsirnar!

 

Image

Aðalbyggingin í Boston þar sem George Washington hélt fyrsta forsetaávarpið á svölunum.Á sýnum tíma þótti þessi bygging mjög stór sem er pínku fyndið því núna er hún umkringd háhýsum.

Image

Þetta hótel er mega flott og gamaldags

Image

Ég á ennþá eftir að gera kannski eitt lítið blogg með fleiri myndum frá Connecticut og New York..

Núna er ég samt komin til Ohio… er ekkert búin að taka neinar myndir hérna, bara búin að vera að chilla með fjölskyldumeðlimum og svona… er samt að spá í að kíkja út og taka myndir. Það er alveg challenge að taka flottar myndir því þetta er svo rough hérna en kannski geri ég bara project sem heitir Le Ghetto! haha myndir þurfa ekki alltaf að vera “fallegar” til að verða áhugaverðar. Það lærði ég í ljósmynduninni því kennarinn minn elskaði svona hráar myndir af hversdagslífi hjá helst minnihlutahópum. En meira um það seinna… ég var að koma heim úr lunch með frænkum mínum og frænda, ætla að halda áfram að njóta lífsins!

ADIOS AMIGOS!

greta skýrði þessa mynd: "grandpa knows it all"

Í Boston…

5 feb

..hjá gestgjöfunum Gretu, Óðni og Söndru milli föstudags og mánudags :)

Í dag er Super-Bowl Sunday og New England Patriots er að keppa sem er m.a. lið Boston. Við erum að fara í eitthvað partý og Greta sem er aðeins of myndarleg er að baka einhverja sjúka köku. Núna er hún að föndra krem í alls konar litum meðan við horfum á Sex and the city. 

Image

Við fórum í gær í geggjaðan Brunch á morgunmatsstað sem er inni í bókabúð. Sjúklega kúl! Fengum okkur alls konar gúmmulaði, meðal annars fluffy amerískar pönnukökur með jarðaberjum og súkkulaði innan í. 

Image

Image

Image

Image

Svo fórum við á rosa fancy og fínan stað sem heitir Atlantic Fish og út í drykki eftir það. Rosa gaman saman! Alveg þess virði að spreða smá í vinkonukvöld því það er svo langt síðan við hittumst og langt þangað við hittumst aftur! 

Fordrykkurinn var í anda sex and the city, mango og ferskju cosmopolitan!:

Image

Image

Forrétturinn: Lobster ravioli… NAMMIIIIIII

Image

Deildum aðalréttunum: Koli (Lemon sole) og rækju og hörpuskels risotto… Þessu var sturtað niður með ísköldu Chablis hvítvíni. Talk about fancy!Image

ImageImage

And the fun continues…. þangað til næst! 

Adios amigos! ;)

 

 

Posing in Washington Sq Park

4 feb

Image

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.